Fotbolti.net
12.08.25 - 13:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Isak fluttur út af heimili sínu í Newcastle

Alexander Isak.

Alexander Isak.

Canon

Mynd: EPA

Sænski sóknarmaðurinn Alexander Isak er fluttur út af heimili sínu í Newcastle en hann er að reyna að koma sér frá félaginu.

Sænski leikmaðurinn hefur engan áhuga á að spila fyrir Newcastle aftur og hefur hafnað möguleika á að æfa með hópnum að nýju. Hann virðist heldur ekki hafa neinn áhuga á því að búa áfram í Newcastle.
Í upphafi mánaðarins hafnaði Newcastle 110 milljóna punda tilboði Liverpool í Isak.

Hann fór ekki með Newcastle í æfingaferð á undirbúningstímabilinu og ljóst að hann verður ekki með í fyrsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni, hádegisleiknum gegn Aston Villa á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.