Fotbolti.net
12.08.26 - 23:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hlupu inn á völlinn og fengu myndir af sér með leikmönnum United

Hlupu inn á völlinn og fengu myndir af sér með leikmönnum United
Canon

Mynd: EPA

Það var ótrúleg uppákoma í æfingaleik Man Utd og Leeds í kvöld þegar nokkrir krakkar hlupu út á völl til að fá myndir af sér með leikmönnum.

Þegar skammt var til loka leiksins fór boltinn út af og tveir krakkar fóru til Yuri Tielemans og fengu myndir af sér með miðjumanni Man Utd.
Þeir komust aftur í stúkuna við mikinn fögnuð viðstaddra. Aðdáendur bauluðu á öryggisgæsluna sem bað krakkana vinsamlegast um að yfirgefa völlinn.

Þessi uppákoma hvatti fleiri krakka til að gera slíkt hið sama og einhverjir fengu m.a. mynd af sér með Bruno Fernandes.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Man Utd vann í vítaspyrnukeppni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.