Fotbolti.net
21.09.26 - 15:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

ÍBV spilaði í endurgerð af sögufrægum búningum

ÍBV spilaði í endurgerð af sögufrægum búningum
Canon

Mynd: Tómas Arnar Gíslason

ÍBV spilaði í gær í hvítum treyjum með rauðum, hvítum og svörtum ermum sem minntu á 1998 treyju liðsins. Það ár varð liðið tvöfaldur meistari.

Búið var að ákveða að selja treyjur sem væru í þeim stíl en það var svo tekin ákvörðun um að spila í treyjunum í leiknum gegn Val í gær.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 1 Valur
„Hugmyndin var bara að hafa gaman af lífinu, engin svaka pæling. Þessir búningar áttu að vera löngu komnir og svo þegar þeir komu var bara hugsunin af hverju ekki? Þessir búningar eru komnir í sölu. Eftir á að hyggja var ákveðið plan að sýna þessa búninga og auglýsa þá."

Margir Eyjamenn eru á því að '98 búningurinn sé sá flottasti í sögu félagsins og fékkst leyfi á að spila allavega einn leik í búningunum.

„Það eru ekki sömu auglýsingar og á '98 búningnum, fengum tvo styrktaraðila til að hjálpa okkur, tvö fyrirtæki sem eru í Eyjum. Annars er treyjan í detailum alveg eins, nema að Uhlsport er ekki að framleiða þá."

Verður farið í hefðbundna hvíta búninga í næsta leik?

„Við erum ekki búnir að ákveða það," segir Alex og greinilegt að Eyjamenn taka búningamálum ekkert sérstaklega alvarlega, og kannski engin ástæða til.

ÍBV á þrjá leiki eftir í Bestu deildinni og er í harðri fallbaráttu. Liðið á næst leik við Þór eftir langt landsleikjahlé, svo er heimaleikur gegn FH og loks útileikur gegn KA.
ÍBV spilaði í endurgerð af sögufrægum búningum
Canon

Mynd: Lukasz Wróbel

ÍBV spilaði í endurgerð af sögufrægum búningum
Canon

Mynd: Lukasz Wróbel

ÍBV spilaði í endurgerð af sögufrægum búningum
Canon

Mynd: ÍBV

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.