Fotbolti.net
12.08.26 - 22:24
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Óánægður með seinni hálfleikinn: Skólabókardæmi um tvískiptan leik

Auglýsing
Óánægður með seinni hálfleikinn: Skólabókardæmi um tvískiptan leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

„Ég er mjög ánægður með að vinna" sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar eftir 3-2 sigur á Val í 16. umferð í Bestu Deildinni.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 - 2 Valur

„Þetta er tilfinning sem okkur hefur sárlega saknað mikið í sumar".

Jóhann var ánægður með fyrri hálfleikinn en ekki seinni.

„Ég held að þetta sé skólabókardæmi um tvískiptan leik. Þetta var algjörlega svart og hvítt. Eins svakalega ánægður ég er með fyrri hálfleikinn þá var ég frekar óánægður með seinni."

„Þetta var ekki fallegt í seinni. Kannski var forystan of þægileg fyrir okkur eða eitthvað í hálfleik. Við óvart skiptum niður um einn gír en þetta var mikið ping pong og barátta í seinni og mér fannst Valur þar aðeins ofan á. En ánægður með mínar stelpur og karakterinn sem þær sýndu og sigldu þessum góðu þremur stigum í hús."

Jóhann segir að hann þurfti ekki að breyta neinu þegar Valur skoraði annað marki sitt.

„Þegar eitthvað fer að ganga illa eða aðeins verr. Að breyta er ekki alltaf eina svarið en ég var ánægður með stelpurnar sem byrjuðu leikinn, ég var ánægður með stelpurnar sem komu inn á. Það fer alltaf um mann þegar forystan er farin úr þremur mörkum niður í eitt. Þær voru að berjast virkilega, kudos á Val. En ég er ánægður með mínar að hafa siglt þessu."

Jóhann er ósáttur með mörkin sem Valur skoraði.

„Það er óhætt að segja að við áttum að gera talsvert betur í því. Bæði aðdragandinn að því, hvernig þau koma. Mér finnst það ekki nógu gott hjá okkur, hvernig við gefum horn og annað í þessu og hvernig við verjumst þeim."

Eru skilaboðin til liðsins að spila eins og í fyrri hálfleik?

„Það eru ágætt skilaboð, byggja á þessu. Mér finnst andrúmsloftið miklu betra núna hjá okkur heldur en það hefur verið, sérstaklega í þessari taphrinu okkar og það hefur finnst mér sést í síðustu tveimur leikjum og við eigum byggja á þessu. Þetta er miklu nær því að vera Þróttur, sem við vorum að horfa á í fyrri hálfleik. Heldur en það sem við höfum sýnt í sumar."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.