12.09.05 - 10:31
Magnús Már Einarsson
Rógvi á láni til SønderjyskE (Staðfest)

Rógvi í leik KR og Vals í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Rógvi í leik KR og Vals í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Færeyingurinn Rógvi Jacobsen hjá KR er á leið til danska liðsins SønderjyskE eins og við greindum frá á föstudag. Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að Rógvi muni fara á lánssamningi til danska liðsins með möguleika á að það kaupi hann frá KR þegar að félagaskiptaglugginn opnar í janúar en SønderjyskE eru nýliðar í dönsku úrvalsdeildinni.
Rógvi sagði við Morgunblaðið: "Mér líst mjög vel á þetta, SønderjyskE hefur verið að skoða mig í undanförnum leikjum með landsliði Færeyja og ákváðu í kjölfarið að fá mig að láni til 1. janúar og þá hugsanlega fara í gang samningaviðræður um kaup. Ég er mjög spenntur fyrir því að fara til Danmerkur, það eru meiri gæði í deildinni þar en hér og það verður gaman að fá að spila þar."
Rógvi hefur leikið alla 17 leiki KR í Landsbankadeildinni í sumar og skorað í þeim þrjú mörk en hann lék sinn síðasta leik fyrir liðið í bili að minnsta kosti þegar að það sigraði Val 2-0 á heimavelli í gær. Rógvi fer til Danmerkur í dag og missir hann því af lokaleik KR í Landsbankadeildinni gegn ÍA á útivelli um næstu helgi.