Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
   lau 12. september 2020 18:05
Ívan Guðjón Baldursson
Bjössi Hreiðars: Köstuðum sigrinum frá okkur eins og frisbídisk
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari Grindvíkinga, var sársvekktur eftir 2-2 jafntefli á útivelli gegn Víkingi í Ólafsvík.

Grindavík komst í tveggja marka forystu í upphafi síðari hálfleiks en Ólsarar náðu að jafna, enda manni fleiri síðasta hálftímann.

„Við vorum algjörir aular í þessum leik, að hafa ekki gengið frá þessu þegar við fengum færi til að gera það er algjör klaufaskapur frá a til ö. Við missum mann útaf í 2-1 stöðu og gefum færi á okkur sem er djöfullegt. Fúlt að fá svo á sig jöfnunarmark, bæði mörk sem við hefðum svo auðveldlega komið í veg fyrir," sagði Bjössi.

„Þetta er eins og sagan hefur aðeins verið. Við komumst yfir í þessum leikjum en missum fókus á ákveðnum tímapunktum sem er súrt. Mér fannst við vera með þennan leik en köstuðum honum frá okkur eins og frisbídisk. Eða ónýtt búmerang.

„Þetta snýst bara um að vera í fókus allan leikinn. Það þýðir ekkert að vera í fókus í 60 eða 70 mínútur, þetta er 90 mínútna leikur. Ef við ætlum að ná árangri þá verðum við að laga þetta."

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner