Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 12. september 2022 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sigur United á Liverpool hjálpaði Ajax í undirbúningnum
Alfred Schreuder og Erik ten Hag
Alfred Schreuder og Erik ten Hag
Mynd: Getty Images

Ajax heimsækir Liverpool á Anfield í Meistaradeildinni á morgun en Alfred Schreuder stjóri Ajax hefur skoðað Liverpool liðið vel.


Schroder var aðstoðarþjálfari Erik ten Hag hjá Ajax áður en sá síðar nefndi tók við Manchester United í sumar. United vann góðan sigur á Liverpool í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð en Schroder hefur skoðað þann leik vel.

„Ég sá hvað þeir gerðu í þeim leik, það eru hlutir sem þeir gerðu sem ég get tengt vel við. við erum með fund í kvöld og við munum skoða hvað við getum gert . Við munu setja okkar besta lið á völlinn til að berjast fyrir okkur á morgun," sagði schreuder

Rangers og Napoli mætast einnig í sama riðli en sá leikur fer fram á miðvikudaginn.


Athugasemdir
banner
banner
banner