12.10.05 - 16:59
Sigurður Donys til Keflavíkur (Staðfest)

Mynd: SD

Mynd: SD
Sigurður Donys Sigurðsson skrifaði nú rétt í þessu undir þriggja ára samning við Landsbankadeildarlið Keflavíkur. Sigurður er 19 ára gamall og ólst upp hjá Einherja á Vopnafirði en hann gekk til liðs við Þór árið 2003.
Sigurður Donys varð svo samningslaus í sumar og fengu Keflavíkingar því hann til sín frítt. Hann lék átta leiki með Þór í 1. deildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark en hann hefur leikið tvo leiki fyrir U19 ára landslið Íslands.
Sigurður Donys byrjaði að vekja athygli haustið 2002 er nokkur lið á Englandi sýndu honum áhuga. Það voru meðal annars Manchester United, Newcastle, Middlesbrough, West Ham, FC Kaupmannahöfn og Stoke City en fjögur síðarnefndu félögin fengu hann til reynsluæfinga hjá sér.