12.10.06 - 11:56
Hafliði Breiðfjörð
Reynir Leósson til Fram (Staðfest)

Reynir Leósson í leik með ÍA sumarið 2005.

Mynd: Boltamyndir

Framarar fengu í dag gífurlegan liðsstyrk þegar Skagamaðurinn Reynir Leósson skrifaði undir samning um að leika með liðinu sem leikur í Landsbankadeildinni á næstu leiktíð. Þetta var staðfest á vefsíðu félagsins en Reynir kemur frá Trelleborg í Svíþjóð þar sem hann var síðstliðið ár.
Hann hafði fyrir það leikið í fjölda ára með ÍA en hjá Fram hittir hann einmitt fyrir Ólaf Þórðarson sem er nýráðinn þjálfari liðsins og stýrði ÍA í nokkur ár fram í sumar.
Reynir Leósson er fæddur 20. ágúst 1979. Hann lék sinn fyrsta leik með ÍA í Efstu Deild með ÍA árið 1996, en það ár varð ÍA bæði Íslands- og Bikarmeistari. Reynir varð fastamaður í liði ÍA 1998, undir stjórn Loga Ólafssonar. Reynir lék þá 16 leiki af 18 og lék auk þess sína fyrstu Evrópuleiki þegar ÍA mætti Zaligris Vilnius í UEFA-bikarnum.
Reynir var fastamaður í vörn ÍA óslitið frá 1998-2005, ef undanskilin eru fáeinir leikir 2001, þegar hann tók sér hvíld vegna meiðsla í sex leiki. Aðrar fjarverur úr liði ÍA voru aldrei meira en 1-2 leikir í einu. Reynir varð Bikarmeistari með ÍA 2000 og 2003, og Íslandsmeistari 2001. Veturinn 2005-2006 söðlaði Reynir um og gekk til liðs við sænska 1. Deildarliðið Trelleborg. Hann meiddist snemma á tímabilinu og missti mikið úr með liðinu.
Reynir hefur alls leikið 132 leiki í Efstu Deild og gert eitt mark, í 3-1 sigri ÍA á Val í Reykjavík árið 2003. Reynir á að baki 17 U21 landsleiki, 11 U19 og 9 U17 landsleiki fyrir Ísland. Þá lék Reynir 15 af 16 Evrópuleikjum ÍA árin 1998-2005.

Heimild: Fram.is