ÍBV fær risastóran mínus - „Stemningsleysi og deyfð yfir þessu"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari í Haraldsstovu Petersen

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marcel stóð vaktina í byrjun móts eftir öflugt síðasta tímabil en missti sæti sitt til Ara eftir nokkra leiki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV var hársbreidd frá sæti í efri hluta deildarinnar í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verður Linta áfram?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í Innkastinu var umferðin í Bestu deildinni gerð upp og var rætt um ÍBV.
„Þeir voru þá heitasta lið deildarinnar, náðu að safna stigum þar. En heilt yfir er mjög auðvelt að segja að þetta sé bara lélegasta lið deildarinnar og eigi skilið að falla," segir Valur Gunnarsson.
„Það er mjög furðulegt að lið geti kveikt á sér í sex leikjum en svo slokknar alveg á þeim aftur," segir Kári Snorrason.
„Það er auðvelt að benda á félagaskiptagluggann. Öll liðin í kringum þá styrktu sig með leikmönnum. KA endar svo á að fá nýjan þjálfara inn. Öll liðin voru að gera eitthvað en það var lítið að frétta af ÍBV. Það kom í ljós að hópurinn var ekki nógu stór. Omar Sowe var mikið frá vegna meiðsla og það munar mikið að missa hann. Það var ákveðið stemningsleysi og deyfð yfir þessu. Það kemur oft orka inn með nýjum leikmönnum," sagði Valur.
Aron Lucas Vokes kom á láni frá Selfossi en annars var lítið að frétta hjá Eyjamönnum í glugganum.
„Þeir fá risastóran mínus fyrir að hafa gert sama sem ekki neitt í sumarglugganum," segir Elvar Geir.
Valur bendir á að mögulega sé það sé ein af stóru ástæðunum fyrir því að liðið sé þegar fallið á þessum tímapunkti.
Ari spilað verr eftir að Marcel fór
Christian Greko Jakobsen skoraði eina mark leiksins fyrir Þór á 30. mínútu og leit Ari í Haraldsstovu Petersen, Færeyingurinn í marki ÍBV, ekki vel út í því marki.
„Ein af ástæðunum fyrir því að þeir falla er sú að Ari er ekki búinn að vera nægilega góður í sumar og hann gerir slæm mistök," segir Elvar.
„Á þessum kafla þar sem þeir voru á skriði fannst mér hann vera að spila vel og við hrósuðum honum í sumar. Hann er fínn í löppunum og það held ég að sé ástæðan fyrir því að Linta gerir þessa breytingu. En þeir voru með Marcel Zapytowski," segir Valur.
„Og Marcel var talinn einn af betri markmönnum deildarinnar á síðasta ári," segir Kári.
„Mögulega var þessi ákvörðun ekki rétt hjá Linta því að um leið og Marcel hætti að vera á bekknum þá hætti Ari að geta nokkurn skapaðan hlut," segir Valur.
Deyfð yfir ÍBV
„Það er glatað að Eyjamenn séu að falla og það sé svona mikil deyfð yfir þessu. Þeir voru einu marki frá því að vera í topp sex í fyrra. Svo hættir Láki og Linta endar á því að koma. Það er eins og stemningin hafi einhvern veginn dottið niður," segir Valur.
„Þeir féllu í gær (laugardag) en maður finnur ekkert fyrir því. Maður heyrir ekkert um það," segir Elvar.
„Þetta er eitthvað sem Keflvíkingar þurfa að hafa í huga, þetta er fljótt að breytast. Ég er svolítið spenntur að sjá hvað mun gerast hjá Eyjamönnum núna," segir Valur.
Aleksandar Linta skrifaði undir þriggja ára samning við ÍBV en hann vildi ekki ræða framtíð sína eftir leikinn á laugardag.
Markið sem felldi ÍBV má sjá hér að neðan.
Greko skoraði sigurmarkið í gríðarlega mikilvægum sigri Þórsara! ???????? #bestadeildin https://t.co/JzgyYVEG85
— Besta deildin (@bestadeildin) October 11, 2026


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari í Haraldsstovu Petersen

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marcel stóð vaktina í byrjun móts eftir öflugt síðasta tímabil en missti sæti sitt til Ara eftir nokkra leiki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV var hársbreidd frá sæti í efri hluta deildarinnar í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verður Linta áfram?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
