12.11.07 - 15:01
Hafliði Breiðfjörð
Jónas Guðni Sævarsson í KR (Staðfest)

Jónas Guðni í KR búningnum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Jónas Guðni Sævarsson fyrirliði Keflvíkinga er genginn í raðir KR en þetta var staðfest á fréttamannafundi í KR-heimilinu í dag. Jónas Guðni skrifaði undir þriggja ára samning við félagið en hann náði samning við KR eftir að félögin höfðu komist að samkomulagi um kaupverð á honum enda var hann samningsbundinn Keflavík til 16. október á næsta ári.
Jónas Guðni gat valið á milli þess að fara til KR, FH og Vals en hafnaði tveimur síðarnefndu félögunum og valdi að fara í KR.
Jónas Guðni er 24 ára gamall og hefur allan sinn feril leikið með Keflavík. Hann á að baki 79 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim eitt mark. Auk þess hefur hann leikið 18 leiki með liðinu í 1. deild og skoraði í þeim leikjum eitt mark.
Auk þess á hann að baki 14 bikarleiki með Keflavík frá árunum 2003-2007 og hefur skorað í þeim eitt mark. Hann hefur tvívegis orðið bikarmeistari með liðinu, árin 2004 og 2006.
Hann var í október í fyrra valinn í fyrsta sinn í íslenska landsliðið sem mætti Svíþjóð í undankeppni EM 2008 en spilaði ekki með liðinu. Hann hefur leikið 7 leiki fyrir U21 árs landsliðið, 4 fyrir U19 og 9 fyrir U17.