12.11.07 - 17:30
Magnús Már Einarsson
William Geir í KS/Leiftur (Staðfest)

Mynd: KS/Leiftur

Mynd: KS/Leiftur
Kantmaðurinn William Geir Þorsteinsson hefur gengið til liðs við sitt gamla félag KS/Leiftur en hann gerði tveggja ára samning við félagið í gær.
William Geir sem er 24 ára lék með KS/Leiftri í fyrra en í sumar var hann á mála hjá Fjarðabyggð.
Í sumar lék Willam Geir sex leiki í fyrstu deildinni með Fjarðabyggð og skoraði í þeim eitt mark.
KS/Leiftur vann sér á dögunum sæti í fyrstu deild að ári en þessi lið tefldu fyrst fram sameiginlegu liði í fyrra.