Fotbolti.net
12.11.07 - 18:28
Hafliði Breiðfjörð

Fylkir lánar David Hannah til Skotlands (Staðfest)

David Hannah í leik með Fylki gegn ÍA í sumar.

David Hannah í leik með Fylki gegn ÍA í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Skoski varnarmaðurinn David Hannah hefur verið lánaður frá Fylkismönnum til Cowdenbeath sem leikur í skosku 2. deildinni en hann fékk leikheimild með skoska félaginu í dag.

Hörður Antonsson formaður meistaraflokksráðs karla hjá Fylki staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag og sagði að Hannah yrði í Skotlandi fram í febrúar eða mars og kæmi þá aftur til Fylkis.
Hannah sem gekk í raðir Fylkismanna síðastliðið haust var einnig lánaður til þessa skoska félagins í lok október í fyrra en sneri aftur til Fylkis 15. mars eftir að hafa leikið 18 leiki með Cowdenbeath.

David Hannah er 34 ára gamall varnarmaður sem kom upphaflega til Grindavíkur og lék með þeim í Landsbankadeildinni sumarið 2006.

Hann fór svo þaðan til Fylkis síðastliðið haust og átti frábært sumar í hjarta varnarinnar sem fékk á sig fæst mörk í Landsbankadeildinni í sumar eða aðeins 18 talsins.

Hjá Fylki lék hann alla 18 leiki liðsins í Landsbankadeildinni auk þriggja leikja í VISA-bikarnum. Í lok september framlengdi hann svo samningi sínum við Fylki út næsta tímabil.

Cowdenbeath er í sjötta sæti skosku 2. deildarinnar sem telur tíu lið. Þeir hafa fengið 17 stig úr 13 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.