Fotbolti.net
13.01.06 - 10:49
Magnús Már Einarsson

Amoroso til AC Milan (Staðfest)

Amoroso til AC Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur keypt sóknarmanninn Marcio Amoroso frá Sao Paolo og er honum ætlað að koma í stað Christian Vieri sem gekk til liðs við Monaco í vikunni.
Amoroso gerði eins og hálfs árs samning við AC Milan og samkvæmt fréttum frá Ítalíu mun hann fá 1,4 milljónir evra í árslaun hjá liðinu. Hann mun hinsvegar væntanlega þurfa að sitja löngum stundum á bekknum hjá Milan þar sem Andriy Shevchenko og Alberto Gilardino eru framherjapar númer eitt hjá félaginu.

Amoroso er ekki óvanur að spila á Ítalíu því hann lék með Udinese frá 1996 til 1999 og svo með Parma til ársins 2001. Hann var markahæstur í Serie A 1998/1999 með 22 mörk en eftir dvölina á Ítalíu fór hann til Borussia Dortmund í Þýskalandi.

Þessi 31 árs gamli leikmaður sem hefur skorað tíu mörk í 21 landsleik fyrir Brasilíu fór svo til Malaga áður en hann gekk til liðs við Sao Paolo síðastliðið sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.