Fotbolti.net
13.01.06 - 11:14
Magnús Már Einarsson

Pandiani til Espanyol (Staðfest)

Pandiani til Espanyol (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Espanyol hefur gengið frá kaupunum á úrúgvæska framherjanum Walter Pandiani frá Birmingham fyrir eina milljón punda. Leikmaðurinn stóðst læknisskoðun hjá spænska liðinu í morgun og skrifaði í kjölarið undir samning við félagið.
Pandiani hafnaði því að fara til Mallorca fyrr í mánuðinum en honum hefur gengið illa að festa sig í sessi hjá Birmingham síðan hann var keyptur til liðsins frá Deportivo La Coruna á þrjár milljónir punda síðastliðið sumar.

Hinn 29 ára gamli Pandiani hafði áður komið til Birmingham á láni í janúar en hann skoraði alls sex mörk í 35 leikjum fyrir liðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.