Fotbolti.net
13.01.06 - 16:40
Magnús Már Einarsson

Jansen til Bolton (Staðfest)

Jansen til Bolton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Matt Jansen hefur gert samning við Bolton út tímabilið en hann var á dögunum látinn fara frá Blackburn Rovers þar sem hann hafði átt erfitt með að festa sig í sessi eftir mótorhjólaslys árið 2002.
Hinn 28 ára gamli Jansen sem átti að æfa með Manchester City í gær fer beint inn í leikmannahóp Bolton sem mætir einmitt Blacburn á morgun. ,,Matt hefur mikla hæfileika jafnvel þótt hann hafi ekki verið notaður hjá Blackbrun nýlega og ég trúi því að hann hafi réttu gæðin til að endurvekja feril sinn hér á Reebok," sagði Sam Allardyce stjóri Bolton.

,,Mig hlakkar til að vinna með honum og frá því núna og þar til í lok tímabilsins vonast ég eftir því að hann nái að endurheimta það form sem gerði hann af einum besta framherja Englendinga fyrir nokkrum tímabilum," bætti ánægður Allardyce við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.