13.01.06 - 17:52
Hörður Snævar Jónsson
Diaby til Arsenal (Staðfest)

Ætli Arsenalmenn séu að fagna Diaby?

Mynd: Getty Images

Ætli Arsenalmenn séu að fagna Diaby?

Mynd: Getty Images
Arsenal hefur gengið frá kaupunum á hinum 19 ára miðjumanni Abou Diaby frá Auxerre í Frakklandi en kaupverðið er um tvær milljónir punda. Diaby sem hefur aðeins komið þrívegis við sögu á þessari leiktíð hjá Auxerre hafnaði Chelsea og ákvað frekar að fara til Arsenal.
, Ég er mjög ánægður að hafa skrifað undir samning hjá Arsenal. Þetta félag er með frábæra sögu og fullt af heimsklassa leikmönum og ég hlakka til að eiga vonandi farsælan feril hér", sagði Diaby.
,,Hann er sterkur miðjumaður og hefur sýnt mikla hæfileika hjá Auxerre. Hann verður góð viðbótt í hópinn okkur," sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal.
Jaque Santini fyrrum landsliðsþjálfari Frakka og núverandi þjálfari Auxerre er hinsvegar allt annað en sáttur við söluna á leikmanninum. ,,Stjórinn minn selur. Eftir Bejani (Mwaruwari fór í Portsmouth) ætti ég að búast við að fleiri fari. Abou var einn af þeim leikmönnum sem ég notaði í byrjun tímabilsins en þurfti síðan að hætta því vegna þrálátra meiðsla."
,,Kannski var hann hrifinn af Englandi og peningunum þar. Það þýddi kannski að hann þurfti ekki að gera allt sem í hans valdi stóð til að komast aftur í sitt besta form með okkur," sagði svekktur Santini.