Fotbolti.net
13.01.06 - 20:38
Jon Einar Hjartarson

Adebayor til Arsenal (staðfest)

Emmanuel Adebayor

Emmanuel Adebayor

Canon

Mynd: Getty Images

Arsene Wenger staðfesti í dag kaup á Emmanuel Adebayor frá Monaco til Arsenal fyrir ótilgreinda upphæð. Adebayor hafði dottið úr liðiniu eftir að hafa skrópað á undanfarnar æfinger og hafði forseti félagsins Michel Pastor látið hafa eftir sér að hann myndi aldrei spila aftur fyrir Monaco en Emmanuel ákvað frekar að æfa með landsliðinu fyrir Afríku keppnina sem hefst 20. Janúar næstkomandi.
Adebayor er fæddur í Tógó sem mun í sumar taka þátt á HM í fyrsta skipti og hefur hann spilað hnefafylli af leikjum fyrir heimaland sitt. Hann gekk til liðs við Monaco frá Metz árið 2003 eftir að hafa leitt þá aftur upp í efstu deild.

“Hann er svona Kanu týpa hávaxinn sterkur í loftinu og er með góð hlaup upp völlinn en fer meira inn fyrir vörninna. Hann kemur með hæfileika í liðið sem við höfum ekki fyrir,” segir framkvændastjórinn Arsene Wenger. Þetta verða önnur kaup Arsenal í janúar eftir að þeir festu kaup á Vasiriki Abou Diaby.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.