13.01.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Marcelinho til Wolfsburg (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wolfsburg hefur keypt brasilíska miðjumanninn Marcelinho frá tyrkneska félaginu Trabzonspor en samkvæmt þýska blaðinu Bild er kaupverðið 2,8 milljónir evra.
Marcelinho sem er 31 árs þekkir þýska boltann vel eftir að hafa leikið með Herthu Berlin frá 2001 þar til síðasta sumar að hann fór til Tyrklands.
Nú er hann hins vegar kominn aftur í þýska boltann og gerði hann samning við Wolfsburg til ársins 2009. Marcelinho hefur all skorað 65 mörk í 155 leikjum en hann var á sínum tíma talinn einn af mest skapandi leikmönnum í þýska boltanu. Vandræði utan vallar komu honum hins vegar einnig oft í fréttirnar.
Wolfburg veitir ekki af hjálp hvað varðar markaskorun því liðið hefur einungis skorað tólf mörk í 17 leikjum á leiktíðinni. Hins vegar hefur liðið einungis fengið á sig fjórtán, og situr það í tólfta sæti Bundesligunnar.

Heimild: AP