Fotbolti.net
13.02.06 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Horsfield lánaður til Sheffield United (Staðfest)

<b>Komdu með treyjuna:</b> Horsfield vill skiptast á treyjum við Mark Fish.

Komdu með treyjuna: Horsfield vill skiptast á treyjum við Mark Fish.

Canon

Mynd: Getty Images

Geoff Horsfield framherji West Bromwich Albion hefur verið lánaður til Sheffield United út þessa leiktíð og er möguleiki á að hann gangi síðan til liðs við félagið í sumar.
Þessi 32 ára gamli framherji sagði: ,,Ég er ánægður með að vera kominn aftur til Yokshire. Sheffield United er á góðu skriði í augnablikinu og á góða möguleika á að komast aftur í úrvalsdeildina."

Horsfield sem hefur einnig spilað með Halifax, Fulham, Birmingham og Wigan lék sinn síðasta leik sinn með West Brom í 6-1 tapinu gegn Fulham á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.