Fotbolti.net
13.02.06 - 21:00
Hafliði Breiðfjörð

Arnar Jón Sigurgeirsson í Víking (Staðfest)

<b>Áfram í röndóttum...</b><br>Arnar Jón verður áfram í röndóttum búningum en hvítu línurnar verða rauðar eftir að hann samdi við Víkinga. Hér er hann í leik með KR gegn Keflavík fyrir tveimur árum.

Áfram í röndóttum...
Arnar Jón verður áfram í röndóttum búningum en hvítu línurnar verða rauðar eftir að hann samdi við Víkinga. Hér er hann í leik með KR gegn Keflavík fyrir tveimur árum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Arnar Jón Sigurgeirsson sem lék með KR undanfarin ár að síðasta ári undanskildu, gekk í dag í raðir Víkinga og skrifaði undir samning þess efnis við nýliðana í Landsbankadeildinni.
Frá þessu er greint á vefsíðu stuðningsmanna Víkinga, Víkingur.net, í dag en Arnar hefur mætt á æfingar hjá liðinu að undanförnu og spilaði æfingaleik gegn Víkingi Ólafsvík. Hann hefur allan sinn feril spilað með KR og vann með þeim fjóra titla á fimm árum 1999-2003.

Í fyrra lék Arnar ekkert með KR liðinu vegna mikilla veikinda en hann þufti að gangast undir hjartaþræðingu í byrjun tímabils í fyrra sem hélt honum utan vallar allt til núna. Arnar getur bæði leikið á kanti sem og í fremstu víglínu.

Hjá Víkingi hittir Arnar Jón fyrir nokkra KR-inga því þjálfarinn Magnús Gylfason er tekinn við liðinu, og auk þess gekk Jökull I. Elísabetarson í raðir félagsins fyrir skömmu. Þá er Grétar Sigfinnur Sigurðsson kominn aftur í Víking en hann er einnig alinn upp hjá KR og Björgvin Vilhjálmsson ólst upp í búningi þeirra röndóttu. Auk þeirra hafa Höskuldur Eiríksson og Egill Atlason leikið með KR en eru í Víkingi í dag.

,,Mér líkaði það sem ég sá. Maggi bauð mér á æfingar og svo spilaði ég þarna hálfleik gegn Víking Ó. liðið er ungt en efnilegt og það eru margir strákar þarna sem munu standa sig vel í sumar," sagði Arnar Jón í viðtali við stuðningsmannasíðu Víkinga sem má lesa í heild sinni á Víkingur.net.

Heimild: Víkingur.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.