Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
banner
   fös 13. febrúar 2026 23:13
Ívan Guðjón Baldursson
Dusan yfirgefur Leikni R. (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Dusan Brkovic hefur yfirgefið Leikni R. eftir að hafa leikið fyrir félagið í fyrrasumar.

Dusan, sem er fæddur 1989, lék með KA og FH í efstu deild áður en hann flutti í Breiðholtið.

Dusan heldur aftur til heimalands síns, Serbíu, þar sem hann mun leika með Jedinstvo Putevi í þriðju efstu deild.

„Leiknir vill þakka Dusan fyrir vel unnin störf og fyrir að vera algjör atvinnumaður innan sem utan vallar," segir meðal annars í tilkynningu frá Leikni.

Dusan spilaði 15 leiki með Leikni í Lengjudeildinni í fyrra og hjálpaði liðinu að forðast fall.



Athugasemdir
banner