Fotbolti.net
13.02.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Eva alfarið til liðs við Fylki og Ísabella Júlía mætt í Árbæinn (Staðfest)

Eva alfarið til liðs við Fylki og Ísabella Júlía mætt í Árbæinn (Staðfest)
Canon

Mynd: Fylkir

Hertz
Eva Stefánsdóttir hefur skrifað undir samning við Fylki sem gildir út komandi tímabil.

Eva er fædd árið 2005 en hún spilaði með Fylki á láni frá Val á síðustu leiktíð en hún er nú alfarið gengin til liðs við félagið. Hún spilaði 17 leiki og skoraði þrjú mörk í Lengjudeildinni síðasta sumar.
Þá hefur Fylkir samið við markvörðinn Ísabellu Júlíu Óskarsdóttur út komandi tímabil.

Ísabella er fædd árið 2005 en hún hefur spilað 95 KSÍ leiki á ferlinum. Hún er uppalin hjá KA og hefur spilað með Þór/KA, Hömrunum, Völsungi og nú síðast Dalvík/Reyni þar sem hún spilaði 4 leiki í 2. deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.