Fotbolti.net
13.02.26 - 09:44
Elvar Geir Magnússon

Segir nýja heimasíðu KSÍ skemmdarverk og sambandinu til vansa

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenskir fótboltaáhugamenn hafa margir lýst yfir óánægju með þá uppfærslu sem hefur orðið á vef KSÍ en þar er erfitt og jafnvel ómögulegt að finna ýmsar mikilvægar upplýsingar.

Fótbolti.net hefur orðið var við gríðarlega óánægju með vefinn en starfsmenn okkar og aðrir íþróttafréttamenn hafa rekið sig á mikla vankanta í leit að upplýsingum, þar á meðal um félagaskipti og samningamál.
„Fer reglulega inn á ksí.is og vonast eftir því að sjá tilkynningu um að verið sé að vinna í því að færa gömlu gögnin yfir á nýju síðuna eða eitthvað í þeim dúr. Ég hef ekkert séð og er farinn að hafa miklar áhyggjur," skrifar hlaðvarpsstjórnandinn og fótboltaunnandinn Jóhann Skúli Jónsson á X.

Hann fer þar yfir hvernig afturför hefur orðið í því að leita að upplýsingum um ferla leikmanna.

„Þessi uppfærsla á KSÍ vefnum er eitthvað mesta skemmdarverk sem ég hef orðið vitni af með íslensk íþróttagögn. Forysta KSÍ skeit rækilega í deigið þarna og sýnir sögunni enga virðingu. KSÍ til mikilla vansa," skrifar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður á RÚV og meðlimur í stjórn samtaka íþróttafréttamanna.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.