Ungur íslenskur þjálfari hafnaði tilboði frá Sádi

Mynd: Lyngby

Mynd: Lyngby
Michael John Kingdon er þjálfari U19 ára liðs Lyngby og hefur vakið athygli fyrir störf sín hjá danska félaginu. Samkvæmt heimildum Fóbolta.net fékk hann á dögunum tilboð frá Sádi-arabíska félaginu Al Fahya um að taka við U19 ára liði félagsins. Michael hafnaði tilboðinu.
Hann hefði hækkað í launum en hann er ánægður í starfi hjá Lyngby og er með öflugt lið í höndunum.

U18 lið Lyngby, undir stjórn Michael, tekur þessa dagana þátt í alþjóðlegu móti, Snow Bowl, í Bandaríkjunum. Liðið vann í dag Benfica í undanúrslitum og mætir á morgun Philadelphia Union í úrslitaleik. Dortmund, Manchester United, Benfica, Newcastle og PSV eru á meðal liða sem taka þátt í mótinu.
Michael var leikgreinandi hjá Fylki áður en hann fór til Lyngby í byrjun síðasta árs. Hann var þá ráðinn sem leikgreinandi aðalliðsins og starfaði einnig í kringum unglingaliðið. Hann tók svo við sem þjálfari U19 síðasta sumar. Hann er 28 ára og er með UEFA A þjálfaragráðuna.
Hjá U19 liði Lyngby hefur Michael unnið með unglingalandsliðsmanninum Jakobi Gunnari Sigurðssyni sem hefur spilað með aðalliði félagsins síðustu vikur.