Sunderland er búið að reka Kristjaan Speakman úr starfi sínu sem yfirmaður fótboltamála eftir fimm ár hjá félaginu.
Starfstitill Speakman var 'yfirmaður íþróttamála' en í fyrrasumar var Florent Ghisolfi ráðinn inn í sömu stöðu og fékk titilinn 'yfirmaður fótboltamála'.
Þeir hafa starfað saman á tímabilinu en eigendur Sunderland telja sig ekki lengur hafa þörf á Speakman.
Speakman stóð sig frábærlega og hjálpaði Sunderland aftur upp í ensku úrvalsdeildina en þegar hingað er komið vilja eigendur félagsins frekar fylgja Ghisolfi.
Speakman er frábær í því að finna efnilega leikmenn í ensku neðri deildunum en Ghisolfi býr yfir reynslu á stóra sviðinu eftir að hafa starfað fyrir OGC Nice og AS Roma á undanförnum árum. Ghisolfi er aðeins 40 ára gamall og lék fyrir SC Bastia og Stade de Reims í franska boltanum á ferli sínum sem atvinnumaður.
Þá hafa eigendur Sunderland ekki gleymt hrikalegum ráðningum á Michael Beale og Mike Dodds í þjálfarastólinn sitthvorum megin við áramótin 2023-24. Eftir þær ráðningar hættu þeir að treysta Speakman fyrir þjálfaramálunum og sáu sjálfir um að ráða hinn magnaða Régis Le Bris.
Kyril Louis-Dreyfus, forseti Sunderland, sá um ráðninguna eftir að hafa hrifist persónulega af aðferðafræði Le Bris þegar hann starfaði hjá Lorient.
Athugasemdir




