Fotbolti.net
13.03.07 - 07:50
Guðmundur Dagur Ólafsson

Capdevila til Villareal í sumar (Staðfest)

Capdevila í baráttunni með Depor

Capdevila í baráttunni með Depor

Canon

Mynd: Getty Images

Joan Capdevila, vinstri bakvörður Deportivo la Coruna, mun í sumar ganga til liðs við Villareal og mun hann skrifa undir þriggja ára samning við Gulu kafbátana eins og félagið er kallað.
Samningur Capdevila við Deportivo rennur út eftir tímabilið og því þarf Villareal ekki að borga neitt fyrir hann. Depor hafði vonast til að sannfæra hinn 29 ára gamla bakvörð um að vera lengur en félagið náði ekki að verða við kröfum hans.

Hann fékk tilboð frá liðum á Englandi, Ítalíu og Frakklandi en ákvað á endanum að vera lengur á Spáni. Samningur hans við Villareal er talin vera tvisvar sinnum hærri en sá sem hann var á hjá Deportivo.

Capdevila, sem hefur leikið landsleiki fyrir Spán, mun klára tímabilið með Deportivo áður en hann gengur til liðs við Villareal í sumar fyrir næsta tímabil.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.