13.03.08 - 10:39
Hafliði Breiðfjörð
Hannes Þ. Sigurðsson í Sundsvall (Staðfest)

Hannes í landsleik með Íslandi.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Hannes í landsleik með Íslandi.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Seint í gærkvöld var gengið frá því að Hannes Þorsteinn Sigurðsson gengi í raðir sænska úrvalsdeildarfélagsins Sundsvall frá hinu norska Viking en þessi skipti hafa verið yfirvofandi undanfarna daga.
,,Síðasta púslið er nú komið á sinn stað," var haft eftir Cain Dotson íþróttastjóra Sundsvall á vefsíðu félagsins í gærkvöld.
Hannes kemur frá Viking í Noregi þar sem hann spilaði í heildina fimm leiktíðir en þeim tíma var þó skipt upp í tvö tímabil, þess á milli spilaði hann með Stoke City á Englandi og Bröndby í Danmörku.
Hjá Sundsvall vonast menn eftir því að Hannes geti leikið sinn fyrsta leik með félaginu á sunnudag er liðið mætir Rosenborg í æfingaleik.
Hannes sem er 24 ára gamall hóf meistaraflokksferil sinn með FH en sumarið 2001 lék hann11 leiki með liðinu í efstu deild auk þriggja bikarleikja. Þaðan fór hann til Viking í Noregi en frá Viking til Stoke City. Hann kom svo við hjá Bröndby áður en hann gekk aftur í raðir Viking.
Hann á að baki 10 leiki með A-landsliði Íslands auk 14 leikja með U21 árs landsliðinu.

Heimild: Vefsíða Sundsvall