13.03.08 - 15:04
Magnús Már Einarsson
Daníel Einarsson aftur í ÍH frá Fram (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

ÍH hefur fengið miðjumanninn Daníel Einarsson í sínar raðir að nýju en hann kemur til félagsins frá Fram.
Daníel lék með ÍH þegar að liðið komst upp úr þriðju deildinni sumarið 2006 en hann gekk síðan í raðir Fram.
Hann var á varamannabekk liðsins í upphafi Landsbankadeildarinnar í fyrra en hann fór síðan aftur til ÍH á láni og skoraði þrjú mörk í sjö leikjum á síðari hluta leiktíðarinnar.
ÍH hefur verið að styrkja sig að undanförnu en félagið hefur fengið fimm nýja leikmenn eins og við greindum frá í gær.
Sjá einnig:
ÍH fær fimm leikmenn til liðs við sig (Staðfest)