13.04.05 - 10:35
Elvar Geir Magnússon
Slavisa Matic í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Úr leik hjá Víkingum í 2.deild í fyrra.

Mynd: Leiknir.com

Úr leik hjá Víkingum í 2.deild í fyrra.

Mynd: Leiknir.com
Nýr leikmaður er kominn í raðir Víkings Ólafsvík sem leikur í 1.deildinni í sumar en það er Slavisa Matic frá Júgóslavíu. Slavisa lék hér á landi síðasta sumar en hann var þá í röðum Fjölnis, hann spilaði 14 leiki með Fjölni og skoraði 5 mörk í 1. deildinni. Þar af skoraði hann þrennu í 3-2 sigurleik gegn Stjörnunni.
Slavisa er 27 ára sóknarmaður og á eflaust eftir að styrkja lið Víkings mikið í sumar. Slavisa kemur til landsins þriðjudaginn 19. apríl og ætti því að geta spilað með gegn Leikni í deildabikarnum 23. apríl.
Upplýsingar af heimasíðu Víkings Ó.
Upplýsingar af heimasíðu Víkings Ó.
