13.04.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Skúli Jónsson til Þróttar á láni (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr


Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr
Þróttur úr fyrstu deild karla hefur fengið hinn unga Skúla Jónsson að láni frá KR.
Skúli sem er á nítjánda aldursári getur leikið bæði á miðju og í fremstu víglínu en hann á að baki einn leik í Landsbankadeildinni, gegn Grindavík í næstsíðustu umferðinni í fyrra.
Skúli hefur æft með Þrótti um tíma og þá skoraði hann þrennu í æfingaleik með liðinu á dögunum.
Skúli hefur æft með Þrótti um tíma og þá skoraði hann þrennu í æfingaleik með liðinu á dögunum.
