Fotbolti.net
13.04.26 - 14:00
Kári Snorrason

Sjáðu markið sem tryggði fyrsta sigurinn í 4214 daga

Ingimar Arnar skoraði í gær.

Ingimar Arnar skoraði í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingimar Arnar Kristjánsson (2005) skoraði í gær sigurmark Þórs gegn Val í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.

Sigurinn er sá fyrsti í efstu deild hjá Þór frá því að liðið lagði Breiðablik að velli í september 2014. Í gær voru liðnir 4214 dagar frá sigri Þórs á Breiðabliki. Þá skoruðu þeir Jóhann Helgi Hannesson og Kristinn Þór Rósbergsson mörkin í 2-0 heimasigri.
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
TENGT EFNI

Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á

Lestu um leikinn: Valur 1 - 2 Þór
Enn lengra er frá síðasta útisigri Þórs því enginn útisigur vannst tímabilið 2014. Síðasti útisigur Þórs kom í lokaumferðinni 2013, gegn ÍBV í Vestmannaeyjum. Þá skoruðu þeir Mark Tubæk og Chukwudi Chijindu mörk Þórs í 1-2 sigri þann 28. september 2013 og voru í gær liðnir 4579 dagar frá þeim leik.

Sigurmark Ingimars í gær má sjá hér að neðan.

Upplýsingar fengnar frá Transfermarkt.
Mynd eftir leikinn í gær.

Mynd eftir leikinn í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Innkastið - Ferskir nýliðar og vandræðagangur hjá Val

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.