13.05.05 - 13:38
Magnús Már Einarsson
Dodds semur við ÍBV (Staðfest)

Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍBV með kennslu í kennimyndum í íslensku!

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍBV með kennslu í kennimyndum í íslensku!

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Vinstri bakvörðurinn Lewis Dodds mun leika með ÍBV í sumar en þetta staðfesti Guðlaugur Baldursson þjálfari Eyjamanna við Fótbolti.net í dag. Dodds sem er 19 ára hefur verið til reynslu hjá ÍBV að undanförnu og hann lék meðal annars með liðinu í 4-3 sigri þess á ÍR í gær.
Dodds sem getur einnig leikið sem djúpur miðjumaður hefur gert tveggja ára samning við ÍBV en hann kemur frá Sunderland þar sem hann lék með varaliði félagsins í vetur. Dodds leiki að baki með U-17 og U-18 ára landsliði Englendinga en hann ku hafa verið fyrirliðum í einhverjum leikjum með yngri landsliðunum.
Guðlaugur sagði í samtali við Fótbolti.net að nú væri ÍBV komið með endanlegan hóp enda ekki seinna vænna þar sem fyrsti leikur liðsins er á mánudaginn en þá mætir það Fram á Laugardalsvelli klukkan 17:00.
Sjá einnig:
Einkaviðtal við Guðlaug Baldursson þjálfara ÍBV
Spá Fótbolta.net: 9. sæti (ÍBV)