Fotbolti.net
13.05.06 - 13:20
Magnús Már Einarsson

Þórður með Fjölni í sumar (Staðfest)

Þórður til vinstri ásamt Skúla Jóni Friðgeirssyni leikmanni KR.

Þórður til vinstri ásamt Skúla Jóni Friðgeirssyni leikmanni KR.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Markvörðurinn efnilegi Þórður Ingason mun leika með Fjölnismönnum í fyrstu deildinni í sumar en þetta staðfesti Ásmundur Arnarsson þjálfari liðsins við Fótbolti.net í dag.
Þórður var í láni hjá Everton síðari hluta keppnistímabilsins en hann hefur nú fengið aftur leikheimild með Fjölni og getur hann því verið með liðinu gegn Stjörnunni í fyrstu umferð fyrstu deildarinnar á morgun.

Þessi átján ára markvörður fór á reynslu til Karlsruhe í Þýskalandi síðastliðið haust og eftir að hann fór á láni til Everton lék hann bæði með unglingaliði og varaliði félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.