13.05.08 - 13:13
Magnús Már Einarsson
Peter Ramage og Radek Cerny til QPR (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
QPR hefur gengið frá samningum við Peter Ramage varnarmann Newcastle og Radek Cerny markvörð Slavia Prag.
Cerny hefur verið í láni hjá Tottenham síðan í janúar 2005 en þessi 34 ára gamli Tékki hefur núna gert tveggja ára samning við QPR.
Hann verður þriðji tékkneski markvörðurinn til að spila með QPR en áður hafa Jan Stejskal og Ludek Miklosko, landar hans, leikið með liðinu.
Ramage, sem er 24 ára gamall, hefur hins vegar gert þriggja ára samning við QPR.
Samningur hans við Newcastle rennur út í sumar og Ramage hefur ákveðið að fara til QPR í von um að fá fleiri tækifæri.

Heimild: BBC