Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 13. maí 2019 22:11
Ívan Guðjón Baldursson
Ingvar Ásbjörn fær leyfi til að ræða við önnur félög
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingvar Ásbjörn Ingvarsson, leikmaður Leiknis R., hefur ekki komið við sögu í fyrstu leikjum tímabilsins. Hann hefur fengið leyfi frá stjórn Leiknis til að ræða við önnur félög.

Ingvar Ásbjörn, fæddur 1995, hefur verið byrjunarliðsmaður í liði Leiknis undanfarin þrjú ár.

Hann spilar ýmist sem bakvörður eða kantmaður og á 67 leiki að baki í Inkasso-deildinni.

Íslenski félagsskiptaglugginn lokar á miðvikudaginn og því þurfa félög að hafa hraðar hendur á þessum síðustu dögum gluggans.

Leiknir er með þrjú stig eftir tvær umferðir í Inkasso-deildinni en Ingvar hefur leikið fyrir félagið undanfarin ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner