Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   mið 13. maí 2026 20:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Gríðarlega mikilvægur sigur hjá Man City
Mynd: EPA
Manchester City 3 - 0 Crystal Palace
1-0 Antoine Semenyo ('32 )
2-0 Omar Marmoush ('40 )
3-0 Savinho ('84 )

Man City vann gríðarlega mikilvægan sigur þegar Crystal Palace kom í heimsókn á Etihad völlinn.

Leikmenn á borð við Erling Haaland, Jeremy Doku og Rayan Cherki byrjuðu á bekknum hjá City og þá var Josko Gvardiol í byrjunarliðinu en þetta var fyrsti leikurinn hans síðan hann fótbrotnaði í byrjun janúar.

Man City komst yfir þegar Phil Foden átti laglega hælsendingu inn í teig Palace á Antoine Semenyo sem skoraði af öryggi. Omar Marmoush bætti við öðru markinu undir lok fyrri hálfleiks og aftur var það Foden sem átti stoðsendinguna.

Seinni hálfleikurinn var mjög tíðindalítill en City innsiglaði sigurinn í lokin þegar Savinho kláraði færið vel eftir frábæran undirbúning frá Rayan Cherki.

Man City er í 2. sæti með 77 stig, tveimur stigum á eftir Arsenal þegar tvær umferðir eru eftir. Crystal Palace er í 15. sæti með 44 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner
banner