Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   mið 13. maí 2026 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrirliði FH á leið í myndatöku - „Þangað til er þetta óvissa"
Kvenaboltinn
Borin af velli.
Borin af velli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Katla María Þórðardóttir, fyrirliði FH, er á leið í myndatöku vegna hnémeiðsla sem hún varð fyrir í leik FH gegn Stjörnunni á sunnudag. Katla var borin af velli í fyrri hálflelik og bíður eftir því að komast í myndatöku.

Fótbolti.net ræddi við Guðna Eiríksson, þjálfara FH, í dag.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  2 FH

„Við erum að bíða eftir því að hún komist í myndatöku, vitum ekki nákvæmlega stöðuna. Hún finnur dagamun á sér, er á hækjum til að hlýfa fætinum og finnur mun á sér sem er jákvætt. Við vitum ekki hvað þetta nákvæmlega er fyrr en hún kemst í myndatöku."

„Hún á tíma á mánudaginn en það er verið að vonast til þess að hún komist fyrr. Þangað til er þetta óvissa. Þetta eru hnémeiðsli, það kom yfirsnúningur á hnéð. Hún fann ekki eða heyrði smell eða neitt slíkt sem er jákvætt gagnvart krossbandi. Þetta kemur í ljós ekki seinna en á mánudag,"
segir Guðni.

Katla María (2001) er fjölhæfur leikmaður, getur bæði spilað í vörn og á miðju og er á sínu öðru tímabli í Hafnarfirði.

Næst á dagskrá hjá FH, sem er með sjö stig eftir þrjá leiki í Bestu deildinni, er útileikur gegn Selfossi í Mjólkurbikarnum á föstudag.
Besta kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 7 6 0 1 21 - 8 +13 18
2.    FH 7 5 1 1 18 - 9 +9 16
3.    ÍBV 7 4 1 2 13 - 13 0 13
4.    Þróttur R. 7 4 0 3 11 - 7 +4 12
5.    Stjarnan 7 3 2 2 10 - 7 +3 11
6.    Víkingur R. 7 3 0 4 14 - 17 -3 9
7.    Grindavík/Njarðvík 7 2 2 3 8 - 13 -5 8
8.    Valur 7 2 1 4 7 - 10 -3 7
9.    Fram 7 1 1 5 8 - 18 -10 4
10.    Þór/KA 7 0 2 5 11 - 19 -8 2
Slapp
banner
banner
banner