Fotbolti.net
13.06.08 - 13:43
Hafliði Breiðfjörð

Ten Cate tekur við Panathinaikos (Staðfest)

Henk Ten Cate.

Henk Ten Cate.

Canon

Mynd: Getty Images

Henk Ten Cate fyrrverandi aðstoðarþjálfari Chelsea og Barcelona hefu verið ráðinn þjálfari Panathinaikos í Grikklandi en félagið tilkynnti þetta í dag.
Ten Cate var rekinn frá Chelsea skömmu eftir að Avram Grant var rekinn frá félaginu í síðasta mánði. Hann gerði tveggja ára samning við Panathinaikos og tekur við starfinu af Jose Peseiro sem sagði af sér í maí.

,,Á ferli mínum hef ég vanist því að vinna í stærstu keppnunum og það er ein af ástæðunum fyir því að ég lít á þetta skref sem mikla áskorun," sagði Ten Cate á vefsíðu félagsins.

,,Panathinaikos félagið, sagan, metnaðurinn, og metnaður í fótboltanum í heild sinni er eins og hjá bestu fótboltafélögum í Evrópu."

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.