Fotbolti.net
13.06.08 - 16:25
Magnús Már Einarsson

Aaron Ramsey til Arsenal (Staðfest)

Aaron Ramsey til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur gengið frá kaupunum á hinum efnilega Aaron Ramsey en hann kemur til félagsins frá Cardiff City á fimm milljónir punda.
Manchester United og Everton voru einnig á eftir Ramsey en hann ræddi meðal annars við Sir Alex Ferguson stjóra Englandsmeistaranna.

Ramsey fór síðan til Sviss þar sem hann ræddi við Arsene Wenger stjóra Arsenal og í kjölfarið ákvað hann að ganga til liðs við félagið.

,,Hann (Wenger) var stór hluti af ákvörðun minni að fara til Arsenal. Ég er svo ánægður með að hafa skrifað undir hjá Arsenal,\" sagði Ramsey.

Þessi sautján ára Walesverji lék sinn fyrsta leik með Cardiff fyrir ári síðan og í vetur lék hann 22 leiki, meðal annars úrslitaleik bikarsins gegn Portsmouth.

Ramsey var í landsliðshópi Wales sem kom til Íslands á dögunum en hann kom ekki við sögu í þeim leik.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.