Fotbolti.net
13.06.20 - 00:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bjarki: Stuðningsmenn sem komu óvænt espuðu held ég upp í öllum

Auglýsing
Bjarki: Stuðningsmenn sem komu óvænt espuðu held ég upp í öllum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mjólkurbikarinn
„Ég er svekktur eins og gefur að skilja að hafa tapað þessum leik og klúðrað þessu víti. Þetta er pirrandi en kannski ágætt að ég hafi tekið það á mig þar sem það voru margir ungir að spila," sagði Bjarki Baldvinsson, fyrirliði Völsungs, eftir 6-7 tap á heimavelli gegn Þór í Mjólkurbikarnum.
Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni og var Bjarki sá eini sem klikkaði á punktinum. Hann hafði skorað skömmu áður jöfnunarmark Völsungs úr vítaspyrnu. Orri Sigurjónsson fékk að líta rauða spjaldið fyrir brotið og Völsungar léku lokamínúturnar manni fleiri. Var Bjarki svekktur að það var ekki meira eftir til að ljúka leiknum eða var hann kominn á þann stað að hann tók vítaspyrnukeppninni fegins hendi?

„Ég var mjög feginn, ég var alveg búinn á því og ég held flestir í okkar liði. Ég hefði ekki getað spilað margar mínútur í viðtbót."

Þrjú rauð spjöld litu kvöldsins ljós og 14 gul. Hvernig upplifði Bjarki línu dómarans í leiknum?

„Ég held að þetta hafi verið frekar erfiður leikur að dæma. Þeir espuðu svolítið upp í held ég öllum þessir stuðningsmenn sem komu óvænt. Ég hef aldrei fundið svona stuðning hér á Húsavík, það var bara gaman. Ég held að þetta hafi ekki verið öfundsverður leikur fyrir Sigga en ég held að hann hafi ekki haft áhrif á niðurstöðu leiksins."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.