Fotbolti.net
13.06.20 - 00:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jói: Verðum að drulla okkur upp um deild til að hitta Þórsarana oftar

Auglýsing
Jói: Verðum að drulla okkur upp um deild til að hitta Þórsarana oftar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mjólkurbikarinn
Völsungur tapaði 6-7 eftir vítaspyrnukeppni gegn Þór í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikið var á Húsavík og var staðan 1-1 eftir venjulegan leiktíma og 2-2 eftir framlengingu. Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Völsungs, var spurður út í tilfinninguna eftir leikinn í kvöld.
„Hún er ekki góð að tapa, ég lýg engu um það en ég er hrikalega ánægður með þennan leik og minn hóp í dag."

Það var líf í leiknum, nóg af gulum spjöldum og þrjú rauð spjöld fóru á loft. Hverng fannst Jóa línan í leiknum?

„Dómarinn hélt henni bara, ég held að það sé eina svarið við þessu. Alvaro var sennilega óheppinn að fá seinna gula en ef við tökum heildina þá áttu þeir gult inni allavega eitt ef ekki tvö. Það er ekkert út á Sigga að setja, hann var bara fínn í dag."

Hvað getur Jói tekið út úr þessum leik fyrir deildarkeppnina í sumar?

„Ég var sérstaklega ánægður með hugarfarið, það var svolítið vængbrotið lið hjá okkur í dag. Ungir leikmenn sem þurftu að taka stór hlutverk og reyndir leikmenn að taka að sér hlutverk sem þeir hafa ekki verið í áður. Mér fannst við vera síst lakara liðið á vellinum, gríðarlega ánægður með mína menn."

„Ég held að vendipunkturinn í leiknum, eins og allir hafa séð, er þegar Aron Birkir, sem er stórkostlegur markvörður þeirra, bjargar þeim þegar um tíu mínútur eru eftir af leiknum, ver hérna í tvígang úr dauðafærum."


Margir áhorfendur lögðu leið sína á völlinn í kvöld og frábært veður. Vonar Jói að áframhald verði á þessu í sumar?

„Ég ætla að vona það, það var mikið líf í þessu heldur betur. Við erum ekki vön þessu en þetta var hrikalega gaman. Hvað sem það var þá viljum við meira. Við verðum að drulla okkur upp í næstu deild til að hitta Þórsarana oftar ef þetta er stemningin sem við fáum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.