Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   fös 13. júní 2025 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Cleverley ráðinn til Plymouth (Staðfest)
Mynd: EPA
Tom Cleverley hefur verið ráðinn þjálfari Plymouth sem leikur í ensku C-deildinni á næstu leiktíð eftir að liðið féll úr Championship deildinni á þeirri síðustu.

Hann skrifar undir þriggja ára samning.

Cleverley er meðal annars fyrrum leikmaður Manchester United en Jack Wilshere, fyrrum leikmaður Arsenal kom einnig til greina að taka við stöðunni af Miron Muslic sem hætti og tók við Schalke.

Simon Hallett, formaður Plymouth, sagði að félagið taldi Cleverley vera fullkominn aðila í starfið.

„Þegar við töluðum við hann var hann fullkomlega sammála framtíðarsýn og metnaði félagsins og það var ljóst allan tímann að Tom væri rétti aðilinn fyrir okkur," sagði Hallett.

Cleverley lék með Watford frá 2017-2023 en hann lagði síðan skóna á hilluna og stýrði Watford frá mars 2024 en var rekinn rúmu ári síðar.

„Hann er ungur, ástríðufullur og stóð sig frábærlega hjá Watford. Við erum himinlifandi að fá hann til Argyle og hlökkum til að sjá áhrifin sem hann hefur á hæfileikaríka hópinn sem hann hefur til umráða.“

Guðlaugur Victor Pálsson er leikmaður Plymouth.
Athugasemdir
banner