fös 13. júní 2025 15:29
Elvar Geir Magnússon
Mastantuono til Real Madrid (Staðfest)
Táningurinn Mastantuono.
Táningurinn Mastantuono.
Mynd: EPA
Real Madrid hefur gengið frá kaupum á hinum 17 ára gamla Franco Mastantuono frá River Plate. Hann er yngsti leikmaðurinn til að spila keppnisleik fyrir landslið Argentínu,

Kaupsamningurinn nemur 45 milljónum evra, sem er metfjárhæð fyrir argentínska félagið.

Mastantuono hefur spilað reglulega með aðalliði River Plate síðustu tvö tímabil og meðal annars skorað í grannaslag gegn Boca Juniors.

Hann lék með Argentínu í 1-0 sigri á Chile í undankeppni HM. Sex ára samningur hans við Real Madrid verður virkur 14. ágúst, á 18 ára afmælisdaginn hans.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem Real Madrid hefur keypt í sumar, ásamt varnarmönnunum Trent Alexander-Arnold frá Liverpool og Dean Huijsen frá Bournemouth.


Athugasemdir