Fotbolti.net
13.06.25 - 20:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tudor framlengir við Juventus (Staðfest)

Tudor framlengir við Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Igor Tudor, stjóri Juventus, hefur framlengt samning sinn við félagið en samningurinn er í gildi til ársins 2027 með möguleika á framlengingu um ár tilviðbótar.
Tudor var orðaður í burtu frá Juventus og margir stjórar orðaðir við félagið en hann hefur nú framlengt.

Hann tók við liðinu af Thiago Motta í mars en Motta var ráðinn fyrir tímabilið og var árangurinn ekki viðunandi. Juventus hafnaði í 4. sæti deildarinnar og spilar því í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Fyrsta verkefni Tudor eftir að hafa skrifað undir nýjan samning verður að stýra Juventus á HM félagsliða sem hefst á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.