Fær nýjan fjögurra ára samning hjá Tottenham

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tottenham er að ganga frá samkomulagi við spænska bakvörðinn Pedro Porro um nýjan samning, en hann mun framlengja til næstu fjögurra ára.
Bakvörðurinn er orðinn einn af bestu leikmönnum Tottenham þrátt fyrir vandræði liðsins á síðustu leiktíð.
Porro er 26 ára gamall og hefur verið á mála hjá félaginu frá árinu 2023, þegar hann kom frá Sporting.
Spánverjinn hefur verið orðaður við önnur félög, en er nú reiðubúinn að skuldbinda sig áfram hjá Tottenham undir stjórn Roberto De Zerbi.
Núgildandi samningur Porro rennur út árið 2028, en nýr samningur hans mun gilda til 2030.
Porro er í 26 manna landsliðshópi Spánverja á HM, en fyrsti leikur þeirra er gegn Grænhöfðaeyjum á mánudag.