Matti Guðmunds: Hún kemur inn á völlinn þegar glugginn opnar

„Okkur vantar fleiri stig til að komast á þægilegri stað, það er augljóst"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, var svekktur með jafntefli liðsins gegn botnliði Þórs/KA í 8. umferð Bestu deildar kvenna. Hann hefði viljað fá meira út úr fyrri hálfleiknum, nýta góðu stöðurnar og ná markinu.
„Í seinni hálfleiknum fannst mér þetta jafnast út og er svekktari með seinni hálfleikinn. Þetta var hörku leikur. Hingað til í mótinu hafa allir leikir sem við höfum spilað verið hörkuleikir, " sagði Matthías um frammistöðu liðsins í seinni hálfleik.
Valskonur hafa haldið hreinu í þremur af síðustu fjórum leikum. Það hefur aftur á móti vantað upp á markaskorun.
„Markatalan í síðustu fjórum leikjum segir ýmislegt. Við erum búnar að skora eitt mark og fá á okkur eitt mark. Við þurfum að skora meira til að vinna. Við þurfum að bæta ákvarðanatökur og fylla betur í boxið. Fyrirgjöf og hlaup þurfa að fara saman inn í teig og við þurfum að vera agressífari. Við þurfum að halda áfram að vera við. Ég hef bullandi trú á þessu liði og þær eru mjög flottar."
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir lék með Zwolle í Hollandi á síðasta tímabili að láni frá Val. Unglingalandsliðskonan mun leika með Val þegar sumarglugginn opnar þann 16. júlí.
„Já, hún er komin til okkar. Hún tók sér frí eftir að vera í Hollandi. Hún er náttúrulega gífurlega sterkur leikmaður. Hún verður með okkur núna og fer svo á EM. Svo þegar glugginn opnar þá kemur hún út á völl hjá okkur," sagði Matthías.