Fotbolti.net
13.06.26 - 10:31
Brynjar Ingi Erluson

Bayern í sambandi við Rashford - Trafford til Newcastle?

Marcus Rashford gæti farið til Bayern

Marcus Rashford gæti farið til Bayern

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Bernardo Silva er sagður á leið til Real Madrid, Marcus Rashford gæti farið til Bayern München og Man Utd er í góðri stöðu í baráttunni um portúgalska miðjumanninn Mateus Fernandes. Þetta er allt saman í Powerade-slúðurpakka dagsins og meira til.
Það er búist við því að Real Madrid gangi frá kaupum á portúgalska miðjumanninum Bernardo Silva (31) á næstu dögum, en hann kemur á frjálsri sölu frá Manchester City. (Mail)

Bayern München telur sig vera í góðri stöðu í baráttunni um Marcus Rashford (28), leikmann Manchester United og enska landsliðsins, eftir góðar viðræður við umboðsmenn hans. (Teamtalk)

Man Utd er fullvisst um að félagið geti landað Mateus Fernandes (21) frá West Ham og þar með haft betur gegn Arsenal í baráttunni um portúgalska landsliðsmanninn. (Times)

Newcastle hefur endurvakið áhuga sinn á James Trafford (23), markverði Man City og enska landsliðsins. (Athletic)

Arsenal er að íhuga að leggja fram tilboð í Ander Barrenetxea hjá Real Sociedad, en Tottenham hefur einnig fylgst með leikmanninum. (Sun)

Leeds og Liverpool hafa bæði áhuga á Lee Han-beom (23), varnarmanni Midtjylland og suður-kóreska landsliðsins. Napoli, Mónakó, Lyon og fleiri félög hafa einnig fylgst með stöðu hans. (Teamtalk)

Brighton hefur lagt fram 30 milljóna punda tilboð í Luka Vuskovic (19), varnarmann Tottenham. (Athletic)

Viðræður Besiktas við Arsenal um belgíska sóknarmanninn Leandro Trossard (31) eru komnar langt á veg, en hann mun kosta tyrkneska félagið um 20 milljónir punda. (Caught Offside)

Galatasaray hefur áhuga á Emi Buendia (29), leikmanni Aston Villa, en Unai Emery, stjóri Villa, gæti reynt að fá Crysencio Summerville (24) frá West Ham í hans stað. (Football Insider)

Barcelona mun reyna að losa sig við Marc-Andre ter Stegen (34) á næstu dögum, en hann er sagður í viðræðum við Ajax. (Fichajes)
James Trafford er orðaður við Newcastle

James Trafford er orðaður við Newcastle

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.