Fotbolti.net
13.06.26 - 17:48
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

„En mér er bara drullu sama á meðan liðið spilar eins og þær spiluðu í dag án boltans"

„En mér er bara drullu sama á meðan liðið spilar eins og þær spiluðu í dag án boltans"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

„Við skorum þrjú, þær skora eitt. Þær eru miklu meira með boltann í leiknum, við vissum að það gæti orðið niðurstaðan eftir leikinn. Það er örugglega Wyscout tölfræði sem talar um það að possession og XG bleh, en já mjög sanngjarnt" sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar eftir 3-1 úti sigur gegn Breiðablik. 

Hvernig fannst þér frammistaðan í dag?

„Við fáum fullt af tækifærum til þess að skora fleiri mörk, en við getum alveg klárlega verið betri á boltanum í mómentum í leiknum. Fyrri hálfleikurinn þá erum við of mikið að flýta okkur, við erum ekki að ná að tengja fleiri sendingar inn á miðsvæðið og koma miðjumönnunum okkar aðeins meira á boltann í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik vorum við aðeins of fljótar að fara að halda í og aðeins of fljótar að droppa of neðarlega, það er ekki gott. Varnarlega erum við mjög góðar, siglum þessu heim síðustu þrjátíu mínúturnar, það er gott."

Viljið þið spila svona, eins og þið spiluðu í dag?

„Nei, við viljum auðvitað halda boltanum meira, en Breiðablik einnotaði boltann mikið í leiknum í dag og leikurinn spilast líka þannig. Við komum snemma yfir, okkur líður vel án boltans, það vita það allir sem hafa spilað við þetta Stjörnulið, að þær eru góðar varnarlega. Við þurfum klárlega að vera betri að fá opnari tækifæri. Í dag þá get ég talið allavega þrjú dauðafæri sem við klúðruðum í dag."

„En mér er bara drullu sama á meðan liðið spilar eins og þær spiluðu í dag án boltans. Allt effort og commitment og kraftur og trú, allt upp á tíu. Eins og ég segi mér fannst þetta vera mjög sanngjarn sigur því að þær gáfu líf og sál í verkefnið."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.