Fotbolti.net
13.06.26 - 18:27
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjudeild kvenna: HK skoraði sjö í fyrri hálfleik

Lengjudeild kvenna: HK skoraði sjö í fyrri hálfleik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
HK 7 - 0 Tindastóll
1-0 Cally Queen Togiai ('5)
2-0 Ama Mathiesen ('7)
3-0 Cally Queen Togiai ('13,víti)
4-0 Cally Queen Togiai ('25, víti)
5-0 Karlotta Björk Andradóttir ('30)
6-0 Alma Mathiesen ('40)
7-0 Ísabel Rós Ragnarsdóttir ('45)
HK gjörsamlega valtaði yfir Tindastól er liðin áttust við í Lengjudeild kvenna í dag.

Cally Queen Togiai fór á kostum og skoraði þrennu á fyrstu 25 mínútum leiksins. Hún skoraði fyrsta markið á fimmtu mínútu og setti svo tvö mörk til viðbótar af vítapunktinum.

Alma Mathiesen skoraði tvennu og komust Karlotta Björk Andradóttir og Ísabel Rós Ragnarsdóttir einnig á blað fyrir leikhlé, svo staðan var orðin 7-0 í hálfleik. Hvorugt lið bætti marki við leikinn í síðari hálfleik.

Liðin áttust við í botnslag þar sem HK hefur byrjað tímabilið illa og er með 7 stig eftir 6 umferðir. Tindastóll er án stiga.
Lengjudeild kvenna: HK skoraði sjö í fyrri hálfleik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.